Yfirlit yfir öll skjöl Skipulagsstofnunar um Heidelberg-framkvæmdirnar
Grein síðast uppfærð þann 18. maí 2024.
Það er sorgleg staðreynd að eftir netbyltinguna var ein ófyrirséð afleiðing sú að prentaðir fjölmiðlar sama og dóu út. Stafrænir fjölmiðlar eiga í vök að verjast vegna samfélagsmiðla og niðurstaðan er sú að blaðamenn hafa lítinn tíma til almennilegra rannsókna. Og þar sem fjölmiðlar eru nauðsynlegur lýðræðisstólpi merkir þetta að stjórnmálamenn komast upp með meiri ósvinnu en áður, spilling hefur aukist, og borgarar eru ekki eins upplýstir og þeir gætu verið ef fjölmiðlar blómstruðu sem fyrr.
Tökum sem dæmi fyrirhugaðar framkvæmdir Heidelberg Materials. Þessar framkvæmdir hafa verið í kortunum árum saman - en hversu mikið hefur verið fjallað um kosti þeirra og galla í fjölmiðlum? Umfjöllunin hefur verið sáralítil, það birtust einhverjar greinar í Kjarnanum (sem er núna Heimildin) en fjarskalítið á ókeypis vefsíðunum. Vísir hefur birt einhverjar greinar og fleiri undanfarið en Mogginn þegir þunnu hljóði um verkefnið meira og minna.
Þetta merkir að fjölmiðlar hafa meira og minna ekki farið í gegnum allar skýrslur málsins og einfaldað þær fyrir almenning. Og svo veltir bæjarstjórn Ölfuss pólitískri ábyrgð yfir á íbúa með því að segja þeim að kjósa um málið í bindandi íbúakosningu þann 1. júní næstkomandi. Að vissu leyti eru íbúakosningar góðar - en þær eru aðeins góðar ef almenningur hefur fengið allar upplýsingar málsins. Þær hefur hann hvorki fengið frá fjölmiðlum né frá bæjarstjórn, sem hefur neitað að halda nokkra upplýsingafundi um málið fyrir íbúa sveitarinnar og bæjarins. Heidelberg Materials hefur haldið nokkra íbúafundi en auðvitað er framkvæmdaraðili ekki hlutlaus aðili og getur því ekki staðið að upplýsingafundi.
Nú keppast fjölmiðlar við að reyna að upplýsa fólk um málin en meira þarf ef duga skal. Ég legg hér lítið lóð á vogarskálarnar með því að birta yfirlit (með linkum) yfir öll skjöl Skipulagsstofnunar sem varða fyrirhugaðar framkvæmdir. Ég feitletra mikilvægustu skjölin (að mínu mati) sem ég tel að áhugasamir íbúar ættu helst að kynna sér.
Efnistaka Eden Mining úr Litla-Sandfelli
Hér eru öll skjölin. (Það er hægt að smella á nokkra flipa.) Hér er síðan stutt yfirlit:
Matsáætlun: þegar fyrirhugaðar framkvæmdir þurfa að fara í umhverfismat leggur framkvæmdaraðili (EFLA fyrir hönd Eden Mining) fram uppkast að umhverfismatsskýrslu. Drögin kallast matsáætlun
Umsagnir: Skipulagsstofnun biður viðeigandi fagaðila og stofnanir um að lesa matsáætlun og skrifa umsagnir um hana. Íslendingum almennt er einnig heimilt að senda inn umsagnir. Þeir sem skrifuðu umsagnir voru Arnar Bjarki Árnason á Bjarnastöðum í Ölfusi, Örn Þorvaldsson, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Landvernd, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Vatnsveita Hjallasóknar og Vegagerðin. Umsagnir voru meira og minna neikvæðar
Svör við umsögnum: framkvæmdaraðili (EFLA f.h. Eden Mining) svarar umsögnum og athugasemdum
Álit Skipulagsstofnunar: eftir að hafa ráðfært sig við umsagnaraðila og lesið svör framkvæmdaraðila við þeim, skrifar Skipulagsstofnun álit sitt á matsáætlun framkvæmdaraðila
Umhverfismatsskýrsla: framkvæmdaraðili (EFLA f.h. Eden Mining) fer síðan eftir áliti Skipulagsstofnunar þegar hann skrifar endanlega umhverfismatsskýrslu
Umsagnir: Skipulagsstofnun leitar aftur til viðeigandi fagaðila og stofnana og biður þá um að lesa umhverfismatsskýrsluna og skrifa umsagnir. Íslendingum almennt er einnig heimilt að senda inn umsagnir. Þeir sem skrifuðu umsagnir voru Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Samgöngustofa, Umhverfisstofnun, Vegagerðin, Ágústa Ragnarsdóttir, Örn Þorvaldsson, Gylfi Sigurðsson, Henrik Jóhannsson, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) f.h. Icelandic Glacial (vatnsverksmiðjan á Litlalandi í Ölfusi), Landvernd og eigendur lögbýlisins Litlalands. Umsagnir voru meira og minna neikvæðar
Svör við umsögnum: framkvæmdaraðili (EFLA f.h. Eden Mining) svarar umsögnum
Álit Skipulagsstofnunar: eftir að hafa lesið umsagnir og svör við þeim skrifar Skipulagsstofnun álit sitt á umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila. Það er ekki lagalega bindandi heldur aðeins álit og eftir álitið er það sveitarfélagsins að ákveða hvort framkvæmdaraðila verði veitt tilskilin leyfi til að hefja framkvæmdir. Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti áætlanir Eden Mining á fundum sínum
Mölunarverksmiðja Heidelberg Materials
Hér og hér eru öll skjölin (um matsskylduna og svo um umhverfismatið). (Það er hægt að smella á nokkra flipa.) Hér er síðan stutt yfirlit:
Fyrirspurn um matsskyldu: framkvæmdaraðili (Mannvit f.h. Heidelberg Materials) sendir Skipulagsstofnun fyrirspurn um umhverfismatsskyldu
Umsagnir: Skipulagsstofnun leitar aftur til viðeigandi fagaðila og stofnana og biður þá um að lesa fyrirspurnargreinargerð framkvæmdaraðila og skrifa umsagnir um hvort umhverfismat sé nauðsynlegt og hvaða þætti beri að skoða. Íslendingum almennt er einnig heimilt að senda inn umsagnir. Þeir sem skrifuðu umsagnir voru minnihluti bæjarstjórnar Ölfuss, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Landsnet, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Vegagerðin og Vinnueftirlitið. (Hef ekki haft tíma til að lesa þetta allt enn)
Svör við umsögnum: framkvæmdaraðili (Mannvit f.h. Heidelberg) svarar umsögnum og athugasemdum og spurningum Skipulagsstofnunar
Ákvörðun Skipulagsstofnunar: eftir að lesa umsagnir og svör við þeim tekur Skipulagsstofnun ákvörðun um það hvort setja þurfi fyrirhugaðar framkvæmdir í umhverfismat. Í niðurlagi ákvörðunar stendur: „fyrirhuguð framkvæmd kann að hafa umtalsverð umhverfisáhrif … Því skal framkvæmdin háð mati á umhverfisáhrifum“.
Matsáætlun: þegar fyrirhugaðar framkvæmdir þurfa að fara í umhverfismat leggur framkvæmdaraðili (Mannvit f.h. Heidelberg Materials) fram uppkast að umhverfismatsskýrslu. Drögin kallast matsáætlun
Umsagnir: Skipulagsstofnun biður viðeigandi fagaðila og stofnanir um að lesa matsáætlun og skrifa umsagnir um hana. Íslendingum almennt er einnig heimilt að senda inn umsagnir. Þeir sem skrifuðu umsagnir voru Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Landsnet, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Vegagerðin, Erlendur Ágúst Stefánsson, Guðmundur Oddgeirsson, Henrik Jóhannsson, Karl Jóhann Guðnason og Landvernd. (Ég hef ekki haft tíma enn til að lesa umsagnirnar)
Svör við umsögnum: framkvæmdaraðili (Mannvit f.h. Heidelberg Materials) svarar umsögnum
Álit Skipulagsstofnunar: eftir að hafa lesið umsagnir og svör við þeim skilar Skipulagsstofnun áliti á matsáætlun
Umhverfismatsskýrsla: framkvæmdaraðili (Mannvit f.h. Heidelberg Materials) styðst við álit Skipulagsstofnunar og skilar umhverfismatsskýrslu (auk viðauka nr. 1, 2, 3, 4, 5, 6)
Umsagnir: Skipulagsstofnun biður viðeigandi fagaðila og stofnanir um að lesa matsáætlun og skrifa umsagnir um hana. Íslendingum almennt er einnig heimilt að senda inn umsagnir. Þeir sem skrifuðu umsagnir voru Hafrannsóknarstofnun, Heilbrigðisteftirlit Suðurlands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Landsnet, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Vegagerðin, Vinnueftirlitið, Erlendur Ágúst Stefánsson, Guðmundur Oddgeirsson, Náttúruverndarsamtök Suðurlands (NSS), Jón Hjörleifur Stefánsson (ég), Jóhannes Laxdal Baldvinsson og Ester Ólafsdóttir. (Ég hef ekki haft tíma enn til að lesa umsagnirnar allar)
Svör við umsögnum: framkvæmdaraðili (COWI f.h. Heidelberg Materials) svarar umsögnum
Álit Skipulagsstofnunar: eftir að hafa lesið umsagnir og svör við þeim skilar Skipulagsstofnun áliti á umhverfismatsskýrslunni
Næsta skref hjá Heidelberg Materials er að fá tilskilin leyfi fyrir framkvæmdum. Bæjarstjórn Ölfuss hafði lýst því yfir að hún myndi eftirláta íbúum ákvörðunina með því að halda íbúakosningar þann 1. júní næstkomandi. Þann 17. maí var kosningunum hinsvegar frestað og ekki er vitað hvenær þær verða haldnar.
Efnisvinnsla úr sjó við Landeyjahöfn
Hér eru öll skjölin. (Það er hægt að smella á nokkra flipa.) Hér er síðan stutt yfirlit:
Matsáætlun: framkvæmdaraðili (Heidelberg Materials) leggur fram matsáætlun um umhverfisáhrif
Umsagnir: Skipulagsstofnun biður viðeigandi fagaðila og stofnanir um að lesa matsáætlun og skrifa umsagnir um hana. Íslendingum almennt er einnig heimilt að senda inn umsagnir. Þeir sem skrifuðu umsagnir voru Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra, Vestmannaeyjabær, Fiskistofa, Hafrannsóknarstofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Landhelgisgæsla Íslands, Landsnet, Minjastofnun Íslands, Míla, Náttúrufræðistofnun Íslands, Orkustofnun, Samgöngustofa, Umhverfisstofnun, Vegagerðin, Landvernd og Ljósleiðarinn. Langflestir umsagnaraðilar telja umhverfismat nauðsynlegt og lýsa yfir áhyggjum
Svör við umsögnum: framkvæmdaraðili (Mannvit f.h. Heidelberg Materials) svarar umsögnum
Álit Skipulagsstofnunar: eftir að hafa ráðfært sig við umsagnaraðila og lesið svör framkvæmdaraðila við þeim, skrifar Skipulagsstofnun álit sitt á matsáætlun framkvæmdaraðila: honum ber að skila umhverfismatsskýrslu
Umhverfismatsskýrsla: framkvæmdaraðili (COWI f.h. Heidelberg Materials) skilar umhverfismatsskýrslu (auk viðauka nr. 1, 2, 3, 4, 5, 6)
Umsagnir: væntanlegar
Svör við umsögnum: væntanleg
Álit Skipulagsstofnunar: væntanlegt
Fyrirhuguð efnisvinnsla úr sjó er (eins og sjá má af ókláruðu skjalayfirliti hér að ofan) enn í umhverfismati.